Fuglavarnarbúnaður verndar laxa seiði

frétt úr Bændablaðinu:

Nýstárleg tilraun var gerð við ósa Haffjarðarár síðasta sumar, þegar fuglavarnarbúnaði var beitt í þeim tilgangi að halda mávum frá laxaseiðum sem voru að ganga til sjávar.

Ingi Fróði Helgason er umsjónarmaður með þessu verkefni í Haffjarðará. Hann segist vera áhugamaður um vernd villta íslenska laxastofnsins og í grúski sínu um hvernig halda mætti varginum frá þessum dýrmætu seiðum hafi hann komist á snoðir um þessa fuglavarnarleið sem möguleika á að halda fuglunum frá ósnum.

„Það er þekkt að mestar líkur eru á afföllum þegar seiðin ganga til sjávar. Það virðist vera sem eitthvað gerist líffræðilega í seiðunum þegar komið er í saltvatnið þannig að þau verða eiginlega rænulaus í smá stund áður en þau ná áttum og taka stefnuna út á sjó. Þá fljóta þau upp á yfirborðið og eru auðveld bráð fyrir mávana sem virðast vera með það innprentað inn í sitt erfðaefni hvenær þessar göngur eru.“

lesa grein hér:https://www.bbl.is/frettir/fuglavarnir-til-bjargar-laxaseidum#:~:text=N%C3%BDst%C3%A1rleg%20tilraun%20var%20ger%C3%B0%20vi%C3%B0%20%C3%B3sa%20Haffjar%C3%B0ar%C3%A1r%20s%C3%AD%C3%B0asta,Helgason%20er%20umsj%C3%B3narma%C3%B0ur%20me%C3%B0%20%C3%BEessu%20verkefni%20%C3%AD%20Haffjar%C3%B0ar%C3%A1.

Share

Ný og endurbætt hönnun á fuglavarnarbúnaði fyrir landbúnað

Komið er í sölu hjá okkur ný og endurbætt hönnun á Compact fuglavarnarbúnaðinum. Búnaðurinn heitir núna Scarecrow 360. Þessi búnaður virkar ennbetur en eldri kynslóð og núna eru 10 stöðluð hljóð innifalin í búnaðinum, sérhönnuð fyrir íslenskan aðstæður. Þau eru fyrir máva, allar gæsir, álftir, starra og hrafn. Nýi búnaðurinn byggir á random surround tækni svo að fuglar á jörðu niðri fá enn sterkari tilfinningu fyrir því að fugl sé í varnarham á flugi í næsta nágrenni og fælist því ennbetur í burtu.

Búnaðurinn okkar hefur í mörgum tilfellum borgað sig upp á nokkrum vikum í kornrækt og nýrækt enda til mikils að vinna.

Share
Ólafsvík

Höfnin í Ólafsvík komin með fuglavarnarbúnað

Nýverið keypti höfnin í Ólafsvík fuglavarnarbúnað frá okkur. Um er að ræða One Shot kerfi til að halda mávum frá löndunarbryggju. Hluta búnaðarins var komið fyrir í mastri sem var til staðar og svo stjórnbúnaði komið fyrir í skúr sem var líka til staðar.  Við óskum höfninni í Ólafsvík til hamingju.

Share